Aðalvalmynd

Undirsíðukubbur

Auglýsing

Leit

Klukkan

Ég veit það ekki

30. nóvember 2007 klukkan 02:48
Ég hef ekki bombað neinu hérna inn í langan tíma svo það er víst eins gott að þessi færsla verði eins og HD sjónvarp, í ansi háum gæðum... what up? Eftir að hafa verið massíft mikið inn á www.cracked.com (kann ekki enn að setja in linka) þá datt mér í hug listi yfir mestu aumingja tölvuleikja karaktera allra tíma. Ég er kominn með nokkra:

1. Raiden í Metal Gear Solid 2, hann er að vísu marrafakkin illaður í 4, gæti verið með flensuna skiljið mig.

Hann var alltaf fokkin vælandi, með ljósa, síða hárið sitt flagsandi út um allt meðan allir voru að fokk'onum upp. Hann var að vísu með frekar svalt handahlaups move sem var á sama tíma frekar gay af því það lítur út eins og fimleika move. Að vísu eru fimleika menn oftast frekar harðir og sterkir og alls ekki hommar en þeir klæðast samt þessum samfestingum.. sem eru býsna gay... ekki?

Síðan þurfti Raiden líka að feta í fótspor Solid Snake, sem er álíka klassískur og Beethoven eða Cho-fokkin-pin skiljiði mig... Mo-moðerfokkin-zart. Ekki auðvelt sko. Snake var líka takandi kollhnís á gæja og dýfði sér á eftir einhverri massívri vél í skítugustu á í heimi... frekar hart stöff sko.

2. Daxter í Jak and Daxter, veit ekkert um sóló leikinn hans á PSP.

Þessi gæji vildi aldrei fara í nein slagsmál, ef Jak hefði einhverntíman hlustað á hann hefðu þeir aldrei farið í nein ævintýri. Síðan ofan á það var hann alltaf púllandi spilltu lögeglustjóra/pólítíkusa movin með að claima að hafa gert eitthvað eða átt þátt í að gera eitthvað sem hann gerði ekki rassgat. Fáviti.

3. Prinsessan í Mario.

Ég veit þú ert stelpa og allt það, en hversu oft ætlarðu að láta sama gæjann ræna þér? Annaðhvort ertu laumu heit fyrir Bowser eða algjör fokkin aumingi, ég veit að hann er risastór skjaldbaka með gadda á skelinni en af hverju geturðu ekki gert eitthvað í þessum málum? Bara þú veist, sparka í punginn á honum eða eitthvað. Hann hlýtur að vera með pung nema að hann sé alltaf að ræna prinsessunni svo hún geti innréttað risíbúðina hans.

4. Fokkin kubbarnir í Tetris sem eru eins og zeta og öfug zeta.

Af hverju komiði alltaf svona ógeðslega margir í röð akkúrat þegar ég þarf ekkert á ykkur að halda? Af því þið eruð heimskir, já ok. Góð ástæða, aumingjar.

Mér dettur ekkert meira í hug, ég ætti kannski að taka fram ég væri að öllum líkindum mesti ræfla tölvuleikja karakter allra tíma , djöfull yrði ég fyrsti gæjinn sem uppvakningarnir myndu éta, en þessi grein er bara alls ekki um það.
Magnús Björgvin Guðmundsson

krammin' I'm krammin

14. nóvember 2007 klukkan 14:25
and I hope you like krammin too.

Það er komið að þeim tímapunkti í háskólanum að allir fara að kramma öllum lærdómi inn á einn mánuð, ég líka. Djöfuls stress, ég er semí að fokkast upp þó ég sé ekkert í neinum vandræðum. Það er bara eins gott að ég nái öllu, nenni ekki að borga eitthvað tilgangslaust bankalán.

Síðan er málið með vinnu, hvar í fanden á ég að vinna eftir áramót? Ég get ekki unnið í sjoppu eða búð út af æfingum og veit ekki hvort það á við mig að vinna á leikskóla sem myndi annars henta mér fullkomlega. Það er aðallega spurning um hvort ég sé svona gæji sem get verið leiðinlegur við börn, eða hvort ég geti yfirleitt haft vit fyrir þeim. Ég ætti að geta sætt mig við kúkinn af því barnakúkur er ekkert sérstakur, þau borða ekki neitt hvort eð er, gamla fólks kúkur aftur á móti er nasTy með stóru téi.

Þetta er ekki vandamál þannig séð, ég þarf hvort eð er bara að vinna þarna í einhverja 4 mánuði svo ég ætti að gera dílað við þessi krakkarassgöt ef ég fæ starfið á annað borð.

No experience... no problem!

Þó það verði KGRP árshátíð næstu helgi ætla ég ekki að drekka, what up?


Magnús Björgvin Guðmundsson

Ferðalag... í tíma!!!

25. október 2007 klukkan 03:12
Ok, það er alltaf verið að tala um að ef þú myndir ferðast aftur í tíma þá myndirðu breyta sögunni. En ef þú breytir sögunni þá verður sagan eins og þú breytir henni og allir segja að það sem eftir verði sé sagan eins og hún á að vera, ertu þá að breyta sögunni, ertu ekki bara að búa til söguna? Það myndi enginn nema þú vita hvernig sagan ætti að vera í alvörunni. Þetta á að meika sens...

Ok, við lítum á það sem hafi gerst sem sjálfsagðan hlut, allt sem hefur gerst átti bara að gerast. Ef þú ferðast aftur í tímann og breyttir sögunni er það þá ekki eitthvað sem átti allan tímann bara að gerast og þar af leiðandi varstu alls ekki að breyta sögunni, þú varst bara hluti af henni?

Pointið sem ég er að reyna að koma með er að það gæti alltaf einhver verið að breyta fortíðinni og við myndum ekkert vita af því. Fyrir okkur er sagan bara eins og hún er og við lítum ekki á þann möguleika að það sé hægt að breyta henni sem möguleika...

of mikið headfuck? Ég held það.
Magnús Björgvin Guðmundsson

Þjófastælar

17. október 2007 klukkan 14:33
"Ramon Calderon, forseti Real Madrid var stoppaður á flugvellinum í Mexíkó þar sem hann ber sama nafn og frægur mexíkóskur þjófur."

Ok, nokkrir hlutir í sambandi við þetta; er ekki slæmt að vera frægur ef þú ert þjófur? Mér finnst líka mjög gott að það sé ekki bara glæpamaður, eða bófi heldur þjófur. Hverju var hann að stela, djásnum dönsku konungsfjölskyldunnar? Af hverju hljómar það líka mjög "racist" að segja mexíkóskur þjófur, ég sé fyrir mér gæja í rondóttum samfesting með svona grímu fyrir augun. Ég held að Ramon Calderon ætti að hætta að ferðast þannig á milli landa, og ég held hann ætti líka að sleppa því að taka strigapokann sinn með dollaramerkinu á með.

Ég meina, ég er bara að segja.
Magnús Björgvin Guðmundsson

Holy quaco

16. október 2007 klukkan 00:44
Ok, ef þið vitið hver Norm Macdonald er og þið vitið hvaða þáttur The View er, nei bíddu það er skemmitlegra ef ég set þetta aðeins upp.

Norm Macdonald er virkilega grófur grínisti sem var einu sinni í SNL og það er eiginlega hápunkturinn á ferli hans og hann er með virkilega góða Burt Reynolds eftirhermu (sem kemur að vísu engu við). Alltaf þegar hann segir sögur og eitthvað þá er aldrei neitt punchline í þeim, og hann gerir það pottþétt viljandi til þess að fokka öllum upp. Hann er líka mjög góður í að segja einmitt slíka sögu og bíða í smá stund og útskýra síðan allan brandarann með einni setningu sem er virkilega gróf til dæmis:

"9 and a half weeks with Carrot Top should really be called 9 and a half seconds. You know, cos' he's a premature ejaculator."

The View er náttúrulega svona semí kvenréttinda þáttur með 4 konum sem eru eitthvað að grínast með það að vera kona og eitthvað. Ég þekki hann ekki vel, allavega.

Norm er að segja einhverja sögu af sér að spila póker með einhverjum gömlum grínistum og að þeir hafi alltaf verið að segja að hann væri hommi. Hann snýr sér að einnu konunni þarna og segjir "...but I'm not a homosexual man, as you well know." Gellan fokkast eitthvað upp og allir hlæja, Norm bætir svo við: "You're so sexy I'd have sex with you while you were awake!"

Upp úr þurru, fáránlega gott moment.

youtube klippan: http://youtube.com/watch?v=otai1BhLSSM&mode=related&search=
Magnús Björgvin Guðmundsson

Sjiii....

05. október 2007 klukkan 01:17
Hva, kjeppz að dettí kippling um helgina eða? Einn, tvo bjerza? Hehehe.

Ég er að spá í að hætta þessu rugli og byrja bara alltaf að vera geðveikt vandræðalegur í öllum samtölum. Þá meina ég líka þegar ég er að versla eitthvað, stunda einhver viðskipti skiljiði mig? Það væri kannski fyndið fyrir einhvern og ekkert alltof slæmt fyrir mig þar sem ég væri að reyna að vera vandræðalegur, aftur á móti yrði það gríðarlega slæmt fyrir hvern þann sem ég væri að ræða við. Það er samt bara það gjald sem þarf að borga, beuty is pain skiljiði?

Hefur ekkert að gera með það, ekki neitt.

Hvernig virkar það samt að skrifa skiljiði mig í bloggi sem þessu? Hvern er ég að spyrja og býst ég við svari?

Engan og nei eru svörin við þessu.

Ætli þetta sé ekki bara svona undirstrikunar orð eins og ef ég myndi segja "fokkin" eða "moðerfokker"? Ég vil meina það, og þið líka, þið öll munuð meina það sem ég vill að þið meinið.

og nei, ég veit ekki hvað það þýðir.

Af hverju skrifar fólk og talar ekki meira um ekki neitt? Það er sjúklega gaman, að finna út nýjar og skemmtilegar leiðir til þess að skrifa um ekki fokkin sjitt.

Allavega, nóg komið af engu þið þurfið ekki að þakka mér fyrir að sóa mínútu af lífi ykkar, það var ekkert.
Magnús Björgvin Guðmundsson

Stutt og

25. september 2007 klukkan 22:31
laggott? (eða er það lagott, eða lag gott, æi fokk)

Shotgun!
Æi sorrý, ég er ekki með neitt farþegasæti frammí.

Þetta var ég að púlla í gær þar sem við vorum með lánsbíl sem var ekki með neitt farþega sæti frammí. Fáránlegt.

Ég fór á I Now Pronounce You Cuck and Larry og hún var sæmileg. Fáránlegt atriðið sem einn karakterunum sagði basically bara hvað myndin var um. "Hey, ef ske kynni að þið misstuð af því þá ættuð að læra eftirfarandi af því að horfa á þessa mynd: .... blablabla...bla" þið verðið að sjá myndina til að vita um hvað hún er. Ekki fara á hana í bíó samt, plís. Ekki 900 króna virði.

Eins og ég sagði, stutt og laggott. Svipað og fagot...

sem einhver fer síðan að spila á.


Magnús Björgvin Guðmundsson

og það varð blogg

21. september 2007 klukkan 21:17
Menn heimtuðu blogg og blogg skulu menn fá.

Fullyrðiningin (mér finnst eiginlega fyndið hversu rosalega vitlaust þetta orð er skrifað svo ég hef það svona) fleyga sem Denzel Washington æpti á menn um árið "King Kong á ekki neitt í mig!" getur verið notuð í mörgum tilfellum sérstaklega þó þegar unnist hefur mikill sigur á verðugum óvin eða mikilli þraut. Fann ég mig í þannig stöðu í gær er ég hafði þrælt mér út yfir endursögn greinar Franco Moretti um Dracula (ég var að spá í að setja hana hérna inn upp á grínið sem blogg en fattaði að yrði ömurlega ömurlegt) og hún kom nokkuð vel út. Svo ég öskraði að af húsþökum: "Það á ENGINN NEITT í MIG! KING fokkin KONG á ekki neitt í MIG!" Réttlætanlegt þar sem King Kong hefði ekki getað skrifað þessa grein, nema að það væru milljón King Kong(ar?) sem skrifuðu á milljón ritvélar í endalausan tíma þá myndu þeir á endanum skrifa það sem ég skrifaði.

Alltaf er hægt að vitna í Simpsons, þegar Mr. Burns sýnir Homer húsið sitt og er með þúsund apa sem skrifa á þúsund ritvélar þangað til þeir skrifa mestu skáldsögu allra tíma og hann tekur upp eitt blaðið og les:

"It was the best og times, it was the BLEURST of TIMES!?!"

krumpar blaðið og hendir því.

Fokkin klassískt, eins og Beethoven eða Cho-fokkin-pin skiljiði mig. Mo-moðerfokkin-zart í húsinu.

Ég er virkilega að fýla þá nýbreytni og stæla að nota 8-bita hljóð í rapplögum nú til dags. Án gríns, flott stöff.

Pís mafakkas, fokkin át mafakkas.
Magnús Björgvin Guðmundsson

Ehm ekkert?

11. september 2007 klukkan 23:33
Ég hef komist að því að Chuck Norris hefur fengið samkeppni í flottasta skeggi allra tíma:

Tékkið 'etta... hann er meira að segja með kórónu

og hann er með kórónu sem er vanmetið bling. Slick Rick vissi af því, hann var mættur með kórónu áður en allir byrjuðu að kaupa sér hálsfestar sem snúast og eitthvað rugl.


Þetta átti nú ekki að vera myndablogg en ég held við getum öll verið sammála að Slick Rick var og er bling kóngurinn. Að vísu heyrði ég að Raekwon, eða var það Ghostface, ég held það hafi verið Ghostface sem keypti sér einhverja arnarstyttu og bræddi hana niður í armband. Sem er sjúk.t.

Ég fann líka semí upp nýtt slang, þegar ég skrifaði óvart x í staðinn fyrir c í nice þannig að það varð nixe. Mér finnst það feitt, maður gæti meira að segja gert x með höndunum um leið og maður segir það.

Lítill texti, það les þetta enginn nema Danni og Gísli kannski þannig að það skiptir engu máli.
Magnús Björgvin Guðmundsson

Hugleiðingar

29. ágúst 2007 klukkan 16:54
Ég var að klára að hlusta á HP 7: DH (góðir skammstöfunarhæfileikar, jee) af því ég nennti ekki/ tímdi ekki að kaupa hana og var of óþolinmóður til að fá hana lánaða. Það er ýmislegt gott við að hlusta á bók meðal annars að þú getur gert eitthvað annað á meðan að þú færð upplýsingarnar t.d að borða eða skrifa eða að horfa á sjónvarpið (þetta síðasta er frekar erfitt vegna þess að þú þarft að hlusta á tvennt í einu, það er samt gott að horfa á íþróttir) en á móti kemur að þegar þú ert ekki að gera neitt, þ.e bara að hlusta á... þá ertu ekki að gera neitt, bara að hlusta en þegar maður les er maður að gera eitthvað en verður kannski þreyttur svo að það væri fullkomið að sameina þetta. Búa til bók sem breytist í hljóðbók þegar maður vill, eins mikla trú og ég hef á að dótið í star trek gerist á endanum þá væri þetta fullkomin fítus í það dæmi.

Fyrir þá sem hafa aldrei séð Star Trek þá eru bækurnar þeirra svona eins og lófatölvur nema í bókar stærð og síðan er væntanlega hægt að setja hvað sem þú vilt inn á þær. Ég vil samt aldrei lesa mikið á tölvu, hef reynt það og það gefst ekki, er ekki að gefa. Kannski væri hægt að breyta skjánum einhvernveginn.

Það var samt skrítið að klára siðustu Harry Potter bókina og fatta að þegar hún var búinn þá hélt lífið áfram, hvað ætli Fröken Rowling geri næst, vona að hún púlli ekki Chevy Chase á þetta (þ.e byrji að sökka). Ætli hún skrifi fleiri bækur í HP heiminum eða skrifi "fullorðins" bækur... eitt af því sem ég fýlaði mest í þessari bókaröð var hvernig bækurnar fylgdu aðdáendunum í þroska, byrjuðu sem barnabækur þróuðust út í unglingabækur með söguhetjunum og síðan í ja.. grófari unglingabækur.

Ég hef ákveðið að gefa öllum typpi í kassa í allar gjafir það sem eftir er, gæti orðið vandræðalegt á jólunum samt.

Pís.
Magnús Björgvin Guðmundsson

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins